26.01.2012 12:13
Fyrirlesturinn sem átti að vera mánudaginn 6 feb færist til miðvikudagsins 8 feb af óviðráðanlegum orsökum. Um er að ræða afar áhugaverðan fyrirlestur um höfuðáverka. Hvetjum aðrar sveitir til að mæta.
24.01.2012 22:00
Þá er dagskráin fram á vor loksins komin inn á síðuna en beðist er afsökunar á töfinni sem var vegna bilunar í tölvubúnaði.. Dagskráin er sett fram með fyrirvara um breytingar að vanda og í þetta sinn voru ekki sett inn öll námskeið sem eru í boði í nágrenninu né þau sem eru í boði í fjarnámi, félagar eru því hvattir til að skella sér inn á landsbjorg.is og kynna sér það sem skólinn hefur upp á að bjóða. Þá skal vakin athygli á því að enn sem áður getum við óskað eftir námskeiðum frá skólanum með ákveðnum fyrirvara, öllum slíkum hugmyndum og/eða óskum skal koma til stjórnarmanna sem fyrst.
12.01.2012 16:14
Þar sem mikið er um nýliðun hjá okkur nú um þessar mundir erum við að lenda í vandræðum með bæði lykla og skápa. Það er eitthvað um að félagar sem eru ekki virkir í dag séu með lykla sem ættu betur heima í höndum annarra, sama er að segja um búnaðarskápa. Þeir aðilar sem ekki hafa hug á að taka virkan þátt í starfinu í vetur og eru með lykla og/eða skápa eru vinsamlegast beðnir um að mæta á næsta mánudag og aðstoða okkur í að leysa þessi mál.
22.12.2011 12:19
Búið er að útfæra vaktaplan fyrir flugeldasöluna sem hefst 28 des og er opnun eins og hér segir: 28 des.16-22 29 des. 14-22 30 des. 14-22 og 31 des. 10-16. Vaktirnar eru tvískiptar og fólk er beðið að mæta 27 des til að skrá sig á vaktir og undirbúa söluna. Verður boðað nánar síðar með sms.
29.11.2011 17:57
Það vantar mannskap til að fara með unglingadeildinni á Neskaupsstað helgina 17-18 des n.k. Gist verður eina nótt og farið í klifurvegg, kassaklifur og jafnvel siglt eitthvað ef veður leyfir. Áhugasamir hafa samband við formann.
24.11.2011 22:48
Skotstjóranámskeiðið verður haldið á Fáskrúðsfirði 10 des. Skráning á landsbjorg,is eða í síma 5705900.
23.11.2011 17:51
Til stendur að halda skotstjóranámskeið, líklega á Fáskrúðsfirði um miðjan desember. Þeir sem hafa áhuga á að verða sér út um réttindi þessi hafi samband við formann sem allra fyrst.
18.11.2011 13:35
Þeir sem voru að panta peysur, bæði í björgunarsveit og unglingadeild er tilkynnt um að það verður töf á peysum í karlmannsstærðinni Medium, þær koma væntanlega ekki fyrr en í lok des eða í byrjun jan. Aðrar stærðir eru til og ættu að koma fljótlega.
18.11.2011 10:04
Rétt er að ítreka þá umræðu sem fram fór á síðasta mánudag hvað varðar tæmingu hússins fyrir flugeldavertíðina en þeir sem eiga einkaeigur í húsinu eða við húsið sem ekki tengjast starfssemi sveitarinnar eru beðnir að fjarlægja þær í síðasta lagi 1 des n.k.
Einnig vantar umsjónarmann með Ívari á RAM, umsjónarmann vantar á Stefán og þeir sem hafa áhuga á að taka við nýjum sleða eru beðnir að koma því á framfæri við stjórn hið fyrsta svo hægt sé að ganga frá þeim málum.
18.11.2011 09:40
10.02.2012 - 12.02.2012
Sleðamessa verður haldin á Akureyri dagana 10.-12. febrúar 2012. Nánari dagskrá auglýst þegar nær dregur. Sleðamenn, takið dagana frá.
17.11.2011 22:47

Sveitin hefur gengið frá pöntun á nýjum vélsleða af gerðinni ski-doo Freeride 154" og verður hann væntanlega kominn í hús í byrjun nýs árs. Nú þegar hefur verið settur á söluskrá ski-doo Renegade 600 árg 2006 og á næstunni verður auglýstur til sölu Polaris ASSAULT 800 árg 2009.
Verið er að kanna hvort hægt sé að ganga frá pöntun á einhverjum snjó til að nýta fjárfestinguna..
17.11.2011 22:37
Til
stendur að halda sjóbjörgunaræfingu næstu helgi á Norðfirði og
Reyðarfirði.
Kynningar á Sjókalli og
Rescue-Runner.
Hugsanlega fyrirlestur frá þyrluáhöfn
Landhelgisgæslunnar.
Dagskrá:
Föstudagur 18.nóv á Norðfirði.
18:40 Matur fyrir
þá sem vilja
20:00 Kynning á Sjókalli
20:45 Þyrluáhöfn heldur fyrirlestur um
móttöku á þyrlu o.fl.
21:30
Rescue-Runner kynnir nýtt sjóbjörgunartæki.
Laugardagur 19.nóv á Reyðarfirði:
10:00 Kynningarfundur fyrir æfinguna
10:30 Æfing hefst
14:30 Æfingu lýkur
15:00 Rýnifundur um æfinguna
Þeim sem vilja gistingu í húsi Gerpis er það
velkomið.
Skráning hjá Valda í síma 895-9983 eða email
thorvaldur@hljodaust.is.
Skráningarfrestur til fimmtudagskvölds
17.nóv.
14.11.2011 09:48
Fyrsta hjálp 1 verður haldið á Djúpavogi helgina 25-27 n.k. Þeir sem hafa möguleika á að sækja þetta námskeið eru hvattir til að skrá sig sem fyrst hjá skólanum í síma 5705900 eða á landsbjorg.is Nýliðar eru sérstaklega hvattir til að sækja þetta námskeið.
13.11.2011 19:19
Á stjórnarfundi sem haldinn var nú síðdegis var ákveðið að taka verulega á umgengni í húsinu öllu og skal því verki vera lokið fyrir 1 des n.k. Það er eitthvað um muni í einkaeigu sem ekki tengjast björgunarstörfum, sérstaklega í tækjasal sem menn eru vinsamlegast beðnir að fjarlægja fyrir þennan tíma nema um annað sé eða hafi verið sérstaklega um samið. Að öðrum kosti verða þeir fjarlægðir og komi til einhvers kostnaðar vegna þess fellur hann á eigendur. Þetta gildir um allt húsið og lóð þess.
09.11.2011 23:05
Grunnnámskeið í Rústabjörgun verður haldið á Egilsstöðum um helgina 12-13 nóv. Allir hvattir til að taka þátt og sérstaklega nýliðar. Skráning fer fram hjá Landsbjörg í síma 5705900 eða á landsbjorg.is